May 10, 2004
júhú

jibbí....gekk ekki það illa í þessu andskotans prófi :p fell vonandi ekki :p



en ég verð bara að koma því á framfarir hvað PANDA PARK með 90 days men er mikil snilld. Tékkið á henni við tækifæri.



Plata kvöldsins: PANDA PARK með 90 DAYS MEN:


Posted at 02:11 pm by garsil
Make a comment

próf

jæja fokk ég er að fara í próf á eftir í hebresku. Nei þetta er ekki hebreska en gæti allveg eins verið hebreska fyrir einhverjum. Þetta er semsagt jazzhljómfræði verklegt :S Algjört rugl. En allavega ég gerðist sekur um stuld í gær þegar ég náði í nýju plötu Sparta, Porclain, af netinu. Mikið betri en fyrri gripur miklu nær fyrsta At the drive-in dótinu. Ég náði mér líka í aðra plötu af netinu sem er ekki allveg jafn mikill stuldur því hún er ekki til á Íslandi, Panda Park með The 90 Day Men..........en látið ykkur líða vel og eigið gott líf.


.............plata dagsins er: THE THREE EP'S með THE BETA BAND





Posted at 08:49 am by garsil
Make a comment

May 8, 2004
basket and liverpool

Fór út í körfubolta með einhverjum folum og hryssum. Endaði síðan heima hja Geir að horfa á Liverpool - Birmingham. Sem Pool-arar unnu 3-0. Leiðinlegur leikur þar sem þessi lið eru frekar leiðinleg. Geir og Vilmar töluðu ekki um annað en hvað gaurarnir voru massaðir. Bjó til "Best of Botnleðja" list áðan.  Hann hljómar svona (tvö lög af hverri plötu):

1. Þið eruð frábær (Drullumall)
2. Heima er best (Drullumall)
3. Hausverkun (Fólk er fífl)
4. Svuntuþeysir (Fólk er fífl)
5. Rassgat (Magnyl)
6. Ólyst (Magnyl)
7. Farðu í röð (Douglas Dakota)
8. Fallhlíf (Douglas Dakota)
9. I'll Make you Come (Iceland National park)
10. Hotstop (Iceland National park)
+
11. Ave María (live @ X-mas)
12. Rassgat 51 (með sinfó)
13. The Walk (In Line EP)
14. Lay your body down (live/ In Line EP)


endilega commentið listan ef þið fýlið hann eður ei.



Plata dagsins:
Source tags & Codes
 með
And you will know us by the trail of death









Posted at 12:16 pm by garsil
Comments (3)

May 7, 2004
jæja

jæja.....kanski ekki allveg skemmtilegasti dagurinn í dag (heldur ekki gærkveld). En svona er lífið.


Plata dagsins: The Soft Bulletin með Flaming Lips


Posted at 03:24 pm by garsil
Make a comment

May 6, 2004
hreinra meyja sjálfsmorð

Jæja, þá er mins orðin frískur. Eða svona nokkurnveginn. Er sammt að hugsa um að verða skyndilega veikur aftur því ég var að frétta það að það verður Kjalnesingar sögu próf á morgun og ég hef engan tíma til að læra undir það :s. En þetta reddast eins og flest allt. Tónlistin bjargar manni. Í þessum töluðu orðum er mins að hlusta á Virgin Suicide með franska raftónlistar-dúettnum Air. Samin sérstaklega fyrir samnefnda mynd eftir snillingin Sofiu Coppola (sem gerði núna í ár Lost in Translation). Hún er einmitt dóttir enþámeiri snillingsins Francis Ford Coppola. En ekki að það skipti máli. Indislegt sándtrakk og svakalega svöl mynd.


Plata dagsins er semsagt Virgin Suicide með  AIR

Góð plata en toppar þó ekki fyrstu plötuna 'Moon Safari' eða nýjustu "Talkie Walkie'

En maður verður víst að nýta tíman sem maður hefur til að verða sér ekki til skammar í þessu prófi. Bless

Posted at 07:11 am by garsil
Make a comment

May 5, 2004
jibbí skippí

Ég er nú búinn að skipta um bloggsíðu.
Fólk.is var farið að vera dálítið mjög svo svakalega hægvirkt.


En núna er ég veikur og var það líka í gær. Það er gaman en sammt ekki gaman eins og allir kannast við. Horfði á fjórar myndir í gær á bíórásinni: Three Men and a little lady, Chocolat, Meet the Parents og The Yard. Allt fínar myndir nema fyrsta, ekkert það spes en sammt fín. Þess á milli sem þessar myndir voru hlustaði ég á tónlist eins og ég á til.

Plata dagsins í dag: Loveless með My Bloody Valentine.





en þangað til næst....verið þið sæl

Posted at 06:23 am by garsil
Make a comment

May 4, 2004
........

...núna sit ég hérna innilokaður í gasklefanum hlustandi á Low með David Bowie þar sem mörg góð lög eru að finna, sérstaklega í seinni kafla plötunar þar sem Brian Eno fær að leika lausum hala. Þessi plata hefði sennilegast ekki orðið eins flot og hún er hefði Eno ekki fiktað við hana. Eins er að segja með Halldór Laxness með Mínus. Fínasti gripur þó svo að flest lögin eru allveg eins uppbyggð og í sama tempói eru þarna lög eins og 'The Long Face' (hlustið á blásarana í byrjun) og 'Insomniac' (tékkið á snilldar trommutöktum sem eru spilaðir afturábak og læti) sem hefðu ekki verið svona flott hefði Bibbi Curver og Ken Thomas ekki komið við sögu. Þannig að næst þegar þið hlustið á plötu og finnst eithvað sánda fríkí og flott skoðið þá í umslagið og leitið af "Producer" eða "Produced By" og nafnið þar fyrir aftan er sennilegast gaurinn sem datt þetta í hug og/eða framkvæmdi þetta. Bítlarnir hefðu kanski ekki verið svona súper góðir hefði George Martin ekki setið við takkana uppi í stjórnklefanum í Abbey Road.




takk fyrir mig



plata dagsins: The Great Escape - Blur







Posted at 06:37 am by garsil
Make a comment

May 1, 2004
tónleika hald

Placebo miðasalan hefst á morgun klukkan 6.

-ég ætla



En málið er með miðasölur að maður veit aldrei hvenær maður á að mæta. Ætti maður að mæta klukkan 12 til að vera öruggur að fá miða?
Eða á maður að mæta klukkan 6 og reyna að finna einhverja gaura sem maður kannast við og láta þá hleypa manni í röðina?
Eða ætti maður að mæta bara klukkan 7 og vona að íslenska fólkið fólkið hafi ekki gripið Placebo heljartökum eins og þeir gera við Korn og Muse :S

Annað sem mér finnst fáránlegt er miðasalan á Pixies. Ein flottasta hljómsveit í heimi. En umboðsfyrirtækið sem flutti þá inn verður að refsa fátækum námsmanni eins og mér með því að hafa "tilboð" að fólk geti keypt miða á Pixies um leið og þeir kaupa miða á KRAFTWERK. Ég á ekki pening til að fara á allt. Síðan þegar miðasalan "hófst" á Pixies þá voru örfáir miðar eftir. :S:S:S:S

Meira um tónleika. Írski snillingurinn Damien Rice kom til landsins ekki alls fyrir löngu og hélt tónleika hérna á Nasa. Hugljúf og góð tónlist. En auðvitað þurfti að refsa fólki sem hlustar á tónlist sem er ekki "ætluð" þeim. Því það var 21 árs aldurstakmark. Auðvitað vildi mamma eða pabbi eyða 3-4 þús kalli að fara á tónleika með einhverjum Íra með kassagítar sem henni finnst ekkert gaman að. Það er ekki mér að kenna að ég hlusti ekki á Iron Madien, Metallica, Busted eða Muse. En enn og aftur þarf að refsa manni fyrir að hlusta á öðruvísi tónlist en flestir samaldrar :S



en hvað með það..........búinn að redda mér miða á Placebo

Posted at 06:31 am by garsil
Make a comment

Previous Page

msn/mail:
garsilheistakk@hotmail.com

   

<< October 2009 >>
Sun Mon Tue Wed Thu Fri Sat
 01 02 03
04 05 06 07 08 09 10
11 12 13 14 15 16 17
18 19 20 21 22 23 24
25 26 27 28 29 30 31


Krei-c fólk:
Ari
Beggi
Lísa
Dagmar
Halldór og Hafsteinn
Erna og Stína
Tanja
Árný
Vilmar




If you want to be updated on this weblog Enter your email here:


rss feed

blogdrive